Vel peppuð í viðureignina gegn MR

Verkmenntaskóli Austurlands mætir Menntaskólanum í Reykjavík í kvöld í átta liða úrslitum spurningakeppni framhaldsskólanna, Getu betur. Slétt tuttugu ár eru síðan VA komst síðast í sjónvarpshluta keppninnar.

„Fólk er mjög peppað. Einhverjir ætla að fylgja okkur suður, það er búið að vera að semja söngva í vikunni. Þegar maður mætir kennurunum á göngunum fær maður spurningar um keppnina,“ segir Hákon Þorbergur Jónsson, fyrirliði liðs VA.

Hann er í liðinu ásamt þeim Helenu Lind Ólafsdóttur og Ragnari Þórólfi Ómassyni. Geir Sigurbjörn, tvíburabróðir Ragnars, er síðan varamaður. Birgir Jónsson, verkefnastjóri í skólanum, þjálfar liðið.

VA komst í átta liða úrslitin með að vinna fyrst Menntaskólann á Laugarvatni 23-8 en síðan Borgarholtsskóla 23-21. Jafnt var fyrir lokaspurninguna sem Austfirðingarnir negldu og komust áfram.

Andstæðingurinn í kvöld er MR, sá skóli sem langoftast hefur unnið keppnina eða 21 sinni. „Við vitum að þau vilja vinna og viðhalda sigurhefðinni þannig við reiknum með erfiðri keppni. Það er spennandi að komast í sjónvarpið og mæta svona stórum skóla,“ segir Háon.

VA hefur einu sinni áður komist í sjónvarpið, árið 2002 og komst þá í undanúrslit eftir að hafa lagt bæði Verzlunarskólann og Menntaskólann á Akureyri í leið sinni. Liðið er fullt bjartsýni fyrir keppni kvöldsins.

„Undirbúningurinn hefur gengið mjög vel. Við byrjuðum að æfa að loknu inntökuprófi um tveimur mánuðum eftir að skólinn hófst í haust og höfum hist reglulega síðan.

Ragnar, Hákon og Helena. Mynd: Birgir Jónsson


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar