Verið stappað á flestum tónleikunum til þessa
Ívar Andri Klausen frá Egilsstöðum er aðalsprautan í hljómsveitinni Dopamine Machine sem kemur fram á tvennum tónleikum eystra um helgina. Hann spilar einnig með þungarokkssveitinni Múr á Eistnaflugi um helgina en sú sveit heldur til Þýskalands síðar í sumar.„Dopamine Machine er sjö manna band. Við erum með blásturshóp, tvo gítarleikara, trommur og bassa. Það verður þröngt á þingi en við höfum spilað á minna sviði,“ segir Ívar Andri um tónleika sem sveitin heldur á Aski á Egilsstöðum í kvöld.
„Við spiluðum þarna síðasta sumar. Þótt það væri enn eitthvað Covid á sveimi mætti fullt af fólki og það var geggjuð stemming,“ segir Ívar og svarar því til að hann viti ekki til þess að neitt hópsmit hafi komið upp í kjölfarið.
„Þetta var fyrsta sumarið sem við spiluðum. Við höfum fengið virkilega góðar viðtökur og eiginlega verið stappað á flestum tónleikum okkar í Reykjavík,“ segir hann.
Frítt er inn á tónleikana á Aski sem hefjast klukkan 22 en sveitin kemur síðan fram utan dagskrár á Eistnaflugi á laugadag. Ívar Andri segir sveitina spila popp með bræðingi úr ýmsum tónlistarstefnum. Ívar Andri og Norðfirðingurinn Júlíus Óli Jacobsen sömdu fyrstu lögin fyrir sveitina er þeir voru í skapandi sumarstörfum á Fljótsdalshéraði sumarið 2019.
Ívar Andri kemur síðan fram á Eistnaflugi sjálfur með þungarokkssveitinni Múr á laugardagskvöld. „Við spiluðum grjótharðan metal þótt hann sé drifinn áfram af hljóðgervlum,“ útskýrir hann.
Sú sveit er á leið til Þýskalands í byrjun ágúst til að spila á Wacken tónlistarhátíðinni en sveitin vann forkeppni hérlendis þar sem aðalverðlaunin voru að fá að koma fram á hátíðinni.
„Allir dómararnir hér, utan eins, settu okkur í fyrsta sinn sem er fáheyrt. Þessi síðasti setti okkur í annað sæti. Það var virkilega gaman,“ segir Ívar Andri sem hlakkar til að spila ytra. „Ég hef ekki spilað erlendis áður og er ógeðslega spenntur. Þetta verður örugglega svakalegt ævintýri.“