Viðtökur Regnbogahátíðarinnar langt fram úr væntingum – Myndir
Á annað hundrað manns tóku þátt í gleðigöngu sem markaði upphaf Regnbogahátíðar Hinsegin Austurlands á Egilsstöðum síðasta föstudag. Viðburðir í fjórum byggðalögum verða á vegum hátíðarinnar.„Þetta hefur farið langt fram úr okkar væntingum. Það hafa allir tekið vel í þetta og mætingin verið mjög góð.
Það kom okkur skemmtilega á óvart hve margir gengu með okkur á Egilsstöðum á föstudag,“ segir Tara Ösp Tjörvadóttir, formaður Hinsegin Austurlands.
Gleðiganga hefur verið gengin á Seyðisfirði frá árinu 2016 samhliða Hinsegin dögum í Reykjavík en þetta er í fyrsta sinn sem gengið er á Egilsstöðum. Farið var frá Níunni í miðbænum yfir Fagradalsbraut, þar göngustígur var málaður í regnbogalitunum áður en haldið var áfram upp í Tjarnargarðinn.
Þar var frekari dagskrá með ræðuhöldum og skemmtiatriðum. Meðal þeirra sem fluttu ávarp voru Guðmundur Ingi Guðbrandsson, ráðherra félagsmála, Jódís Skúladóttir þingmaður og fyrrverandi formaður Hinsegin Austurlands og Kristín Þórunn Tómasdóttir, prestur.
Á laugardag tók Regnbogahátíðin síðan þátt í fjölskyldudagskrá LungA í miðbæ Seyðisfjarðar.
Hátíðin heldur síðan áfram um helgina. Annað kvöld verður gengið með Kenderísgöngu Franskra daga á Fáskrúðsfirði og á laugardag með Druslugöngu á Borgarfirði eystra. Á báðum stöðum verða gagnstéttir málaðar í regnbogalitunum.
„Hinsegin menning er rík víða á Austurlandi og við reynum að auðga það sem fyrir er. Okkur hefur alls staðar verið gríðarlega vel tekið og fyrir það erum við mjög þakklát,“ segir Tara.