„Vil nýta hvern dag eins vel og hægt er“

Ingrid Karis á Seyðisfirði virðist eiga fleiri tíma í sólarhringnum heldur en mörg okkar. Hún rekur nú veitingastaðina Stúdió 23 og Seyð-Ís á Seyðisfirði.

„Ég hef alltaf verið svona orkumikil,“ segir Ingrid aðspurð. „Mér finnst einhvern veginn alltaf að maður verði að nýta hvern dag eins vel og hægt er því það er svo margt skemmtilegt sem mann langar til að gera og til þess að komast yfir það allt þarf að nýta tímann,“ segir Ingrid í viðtali í nýjasta tölublaði Austurgluggans.

Þar segir Ingrid, sem fædd er í Eistlandi, frá því hvernig hún faldi sig í skotti bíla til að fá útrás fyrir ævintýraþrá sína og geta flakkað um Norðurlöndin. Hún tók síðan ástfóstri við Ísland, bjó fyrst á höfuðborgarsvæðinu en vildi fara í meiri rólegheit. Þá varð Seyðisfjörður fyrir valinu.

Ingrid var þó varla nema nýflutt í bæinn þegar húsið sem hún hafði fest sér, Berlín, eyðilagðist í skriðuföllunum í desember 2020. Það var áfall en bæturnar fyrir húsið notaði Ingrid til fjárfestinga sem urðu til þess að henni tókst að koma fótunum undir sig á ný.

„Einhverra hluta vegna héldu margir að ég hefði orðið moldrík á því að missa húsið mitt. Raunin er hins vegar sú að já, vissulega fékk ég bætur fyrir húsið mitt, en ástæða þess að ég fékk meira fyrir minn snúð en kannski við var að búast, er að ég fjárfesti strax í tveimur eignum suðvestanlands. Þær seldi ég svo aftur nokkru síðar og aðra eignina með nokkrum hagnaði. Það var sá peningur sem ég notaði svo hér á Seyðisfirði til að koma undir mig fótunum á nýjan leik.“

Lengri útgáfa viðtalsins birtist í Austurglugganum sem kom út í vikunni. Hægt er að panta áskrift hér.


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar