„Vildi að áhorfendur fengju að heyra frá fólkinu sjálfu“

„Mig langaði að leyfa íbúum svona að segja frá þessum atburðum sjálfir svo áhorfendur fengju að heyra hvernig þetta var frá fólkinu sjálfu í stað þess að lesa um það,“ segir Elísabet Anna Gunnarsdóttir, hvers lokaverkefni í Menntaskólanum á Egilsstöðum var að gera heimildarmynd um áhrif skriðufallana í Seyðisfirði á andlega líðan fólks í bænum.

Myndin var frumsýnd fyrir skemmstu á sjónvarpsstöðinni N4 þar sem enn er hægt að sjá hana en N4 heyrði í Elísabetu nýverið og bað hana að útskýra hvers vegna þessi hugmynd hefði skotið upp kollinum.

„Ég vissi að ég vildi hafa aldurshópana mismunandi og hafði það til að miða við en svo fór ég að spyrja krakka sem ég þekki úr skólanum og búa á Seyðisfirði og sendi svo á fólk. Þau sögðu bara söguna sjálf og ég þurfti bara að ýta þeim aðeins af stað. Skriðurnar féllu í lok árs 2020 og ég tók viðtölin öll í byrjun árs 2022. Auðvitað var erfitt að rifja upp þessar minningar en mér fannst almennt að vegna þess að smá tími er liðinn að þá er aðeins auðveldara að horfa til baka, sjá uppbygginguna og hvert bærinn er kominn núna.“

Sjá má allt viðtalið við Elísabetu hér að neðan.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.