Vilja ekki að fjármunir menningarsamninga fari í safnamál
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs leggst alfarið gegn hugmyndum um að þeim fjármunum sem ráðstafað hefur verið til menningarsamninga sveitarfélaga verði ætlað að standa að einhverju leiti undir safnastarfsemi á landsbyggðinni.
Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á seinasta fundi ráðsins.
Í bókun ráðsins er bent á að í menningarsamningum er sérstaklega tekið fram að greiðslur samkvæmt þeim eigi ekki að renna til hefðbundins reksturs safna.
„Með hliðsjón af reynslunni af menningarsamningunum er þó hægt að mæla með því að úthlutun fjármuna til safnastarfs verði framkvæmd með svipuðum hætti, þ.e.a.s. með svæðisbundnum samningum og úthlutun styrkja undir yfirumsjón heimamanna í stað starfsmanna ráðuneyta.“