Vill lífga upp á bæjarbrag í Breiðdal með nýstárlegum flóamarkaði

„Mér finnst einmitt vanta eitthvað svona líf í marga þessa litlu bæi og vonandi getur þetta breytt því til batnaðar,“ segir Heiðdís Þóra Snorradóttir, hönnuður í Breiðdalsvík.

Heiðdís hyggst koma á fót svokallaðri flóamarkaðsseríu í bænum sínum í sumar en það merkir að um marga markaðsdaga yfir langt tímabil er að ræða en ekki endrum og sinnum eins og algengara er með slíka markaði. Þar mun öllum sem áhuga hafa á að selja vörur sínar gefast kostur á að taka þátt og sérstök áhersla verður á að fá listafólk til að koma þar list sinni á framfæri með sýningum eða sölu. Þá er og áhersla á stóran fatamarkað.

„Ég er með ákveðið húsnæði í huga til starfseminnar og gæli við að þar geti ég líka boðið listamönnum upp á vinnustofu til skamms tíma ef allt gengur upp. Svo kemur til greina að færa markaðinn út undir bert loft ef veður leyfir og ég útiloka jafnvel ekki að færa markaðinn til á milli staða ef svo ber undir.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.