Allar fréttir
Starfslok Björns í samræmi við ráðningarsamning
Björn Ingimarsson hættir sem sveitarstjóri Múlaþings um næstu áramót þegar ráðningarsamningur hans rennur út. Hann segist ákveðið að sækjast ekki eftir að nýta ákvæði sem heimilar framlengingu samningsins út kjörtímabilið en kveðst reiðubúinn að skoða málið ef vandkvæði verða á ráðningu eftirmanns.Nýtt athafnasvæði Djúpavogs í Gleði- eða Sandbrekkuvík?
Það kemur í hlut heimastjórnar Djúpavogs á næsta fundi sínum þann 10. október að gefa sitt mat á því hvort Innri-Gleðivík eða Sandbrekkuvík sé heppilegri staðsetning fyrir athafna- og hafnarsvæði bæjarins til framtíðar.