Allar fréttir
Helgi ber sig vel og heldur tónleika á Austurlandi
Hafi eitthvað skort á að íslenska þjóðin og Helgi Björnsson viðhéldu sambandi sínu undanfarin misseri, var sannarlega gerð bragarbót á því í gegnum samkomubannið og Covid-19. Helgi mætti samviskusamlega inn á hvort heimili, ásamt góðum gestum, og söng þjóðina í gegnum þetta erfiða tímabil. Nýsæmdur fálkaorðunni ætlar hann sér að heimsækja Austurland og halda þrenna tónleika, á Eskifirði, Borgarfirði og Egilsstöðum.
Sýnatökuteymi sent til Danmerkur fyrir næstu ferð
Heilbrigðisstarfsmenn verða sendir til Danmerkur fyrir næstu ferð Norrænu til að hægt verði að taka sýni úr farþegum á leiðinni til Íslands. Sýnataka úr um 300 farþegum skipsins á Seyðisfirði gekk vel í gær.„Getum ekki verið búðarlaus lengi“
Oddviti sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps segir það bagalegt að enginn hafi fundist til að halda áfram verslunarrekstri á staðnum frá og með næstu mánaðarmótum. Sveitarfélagið skoði nú hvernig hægt sé að halda þar verslunarrekstri áfram.Svona á forseti að vera
„Forseti á ekki að vera illgjarn, forseti á ekki að vera orðljótur, forseti á ekki að vera óttasleginn, forseti á ekki að óttast framtíðina, forsetinn á ekki að óttast umheiminn eða það sem er honum framandi. Forseti á frekar að vera bjartsýnn, forseti á að vera lífsglaður og forseti á að hafa það alltaf í forgrunni að gera sitt besta, takast á við öll vandamál sem upp kunna að koma, viðurkenna þegar manni verður á og halda svo áfram.“