Allar fréttir
„Hárrétt að biðja um aðstoð björgunarsveitar“
Björgunarsveitin Jökull aðstoðaði konu, sem hafði slasast á fæti, á göngu á Rauðshaug á Fljótsdalshéraði á þriðjudagskvöld. Með konunni í för voru tvö börn. Formaður björgunarsveitarinnar segir konuna hafa tekið rétta ákvörðun með að óska eftir hjálp.Utankjörfundaratkvæðagreiðsla um sameiningu í fullum gangi
Mánuður er í dag liðinn síðan hægt var að byrja að kjósa utankjörfundar í kosningum um sameiningu Fljótsdalshéraðs, Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps og Seyðisfjarðarkaupstaðar. Formaður samstarfsnefndar sveitarfélaganna hvetur þá sem kjósa utan svæðisins til að gera það tímanlega.Höggið af loðnubresti hlutfallslega þyngst á Vopnafirði
Útsvarstekjur Vopnafjarðarhrepps drógust saman um 5,6% á fyrri helmingi ársins samanborið við sama tíma í fyrra. Tekjutap hreppsins og Fjarðabyggðar vegna loðnubrests er samanlagt metið á um 300 milljónir. Sjávarútvegssveitarfélög krefjast þess að fá hluta af auðlindagjaldi í sjávarútvegi til að byggja upp fjölbreyttara atvinnulíf sem mætt geti sveiflum sem þessum.Ástæða til bjartsýni í makrílveiðum á næsta ári
Ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) gefur tilefni til bjartsýni um makrílveiðar á næstunni. Nauðsynlegt er að fylgjast náið með ástandi norsk-íslenska síldarstofnsins og kolmunna.Hrókeringar á Djúpavogi
Stofnfundur Skákdeildar ungmennafélagsins Neista í Djúpavogi var haldinn í gærkvöldi. Hugmyndin að deildinni fæddist eftir að tekin var upp skákkennsla í Djúpavogsskóla.
Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 12% í ágústmánuði
Gistinóttum á hótelum á Austurlandi fjölgaði um 12% í ágústmánuði samanborið við sama mánuð árið 2018. Mesta fjölgunin á landsvísu var á Suðurnesjum eða 19%. Á einum stað fækkaði gistinóttum og var það á Vesturlandi og Vestfjörðum.