Allar fréttir
Telja sig eiga nógu mikið af góðri tónlist til að gefa út breiðskífu
Pönksveitin DDT skordýraeitur hyggur á útgáfu sinnar fyrstu breiðskífu í haust. Hljómsveitarmeðlimir segjast eiga úrval af góðum lögum sem tími sé kominn á að færa í varanlegt form.Verkefni Alþingis að tryggja öllum byggðum tækifæri til þróunar
Alþingi þarf að tryggja samkeppnishæfni byggða með að tryggja bæði að nauðsynlegustu innviðir séu til staðar og að setið sé við sama borð í möguleikum á nýtingu þeirra. Aðgengi að heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni og blikur í efnahagsmálum var meðal þess sem rætt var eldhúsdagsumræðum á Alþingi á þriðjudag.Hætt við enn frekari skerðingu þjónustu hjá sýslumanni
Útlit er fyrir á enn frekari skerðingu þjónustu sýslumannsins á Austurlandi ef ekki verður brugðist við fjárhagsvanda embættisins. Bæjarfulltrúar á Fljótsdalshéraði segja ríkið brjóta lög með að standa ekki undir þjónustu og benda á að ekki hafi verið staðið við fyrirheit sem gefin voru við sameiningu sýslumannsembætta árið 2015.Heillaðist af tækninni í sjávarútvegi
Fanney Björk Friðriksdóttir er 26 ára Vopnfirðingur og starfar sem gæðastjóri HB Granda á Vopnafirði. Hún er sjávarútvegsfræðingur að mennt og segir að sjávarútvegurinn sé að þróast frá því að vera jafn mikill karlageiri og hann hefur verið.
Að sjá hið ósýnilega
„Æskuvinkona mín, Sunna Sigfúsdóttir, er ein þeirra kvenna sem segja sögu sína í myndinni. Hún er hæfileikarík og fluggáfuð en þegar ég var búin að fylgjast með hrakförum hennar á vinnumarkaði og einkalífinu, sem og lesa bókina hennar „CV of a Martian“ fór ég að spá í að kannski væri hún á einhverfurófi og sagði það við hana. Sunna segir svo frá rest í myndinni,” segir Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, félagsmálastjóri í Fjarðabyggð um heimildamyndina Að sjá hið ósýnilega sem sýnd verður á Eskifirði annað kvöld.Líf með litum - Sumarsýning Tryggvasafns
Ný sumarsýning Tryggvasafns í Safnahúsinu í Neskaupstað opnar á morgun laugardag og ber hún heitið Líf með litum. Á sýningunni eru 42 verk og er henni ætlað að gefa gott yfirlit um allan listamannsferil Tryggva Ólafssonar. Elsta myndin á sýningunni er frá árinu 1954, þegar listamaðurinn var 14 ára að aldri, en nýjustu myndirnar eru frá árinu 2017.