Karfa: Höttur vængstýfði Vængi Júpíters - Myndir
Höttur burstaði Grafarvogsliðið Vængi Júpíters 123-56 í fyrstu deild karla í körfuknattleik þegar liðin mættust á Egilsstöðum í gærkvöldi. Yngri leikmenn fengu tækifæri til að spreyta sig í leiknum.Gestirnir voru aðeins með sex leikmenn á skýrslu. Það leiddi til þess að þeir þreyttust fljótt. „Þegar við sáum að þeir voru bara sex ákváðum við að hlaupa á þá," segir Andrés Kristleifsson, fyrirliði Hattar.
Það gekk eftir. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 27-16 en síðan 56-26 í hálfleik. „Við byrjuðum hægt og gáfum þeim færi en vorum svo betri í seinni hálfleik."
Augljóst var að fáliðaðir gestirnir urðu sífellt þreyttari eftir því sem á leið leikinn. Boltinn gekk hratt í sókn Hattar og leikmennirnir fengu næg svæði til að skjóta.
„Við lögðum upp með að vera aðgangsharðir allan leikinn og það sást að þeir áttu ekkert eftir í lokin."
Í lok þriðja leikhluta var staðan 88-47 og í lokin munaði tæpum 70 stigum á liðunum. Tækifærið var nýtt til að gefa yngri leikmönnum tækifæri, þannig skoraði Brynjar Grétarsson fjögur stig í sínum fyrsta meistaraflokksleik.
„Það komu allir með sjálfstraust inn í leikinn og þorðu að skjóta eins og sást á Brynjari. Menn eru oft öruggari með sínum aldursflokki en það er frábært að fá tækifæri í svona leik og þvílíkur heiður að fá að spila fyrir framan alla Egilsstaðabúa," sagði Andrés.
Stig Hattar: Frisco Sandidge 27, Austin Bracey 20 (16 stoðsendingar), Eysteinn Bjarni Ævarsson 17 (6 stolnir boltar), Andrés Kristleifsson 16, Sigmar Hákonarson 13, Benedikt Þorvaldur Guðgeirsson Hjarðar 10, Daði Fannar Sverrisson 6, Hreinn Gunnar Birgisson 5 (13 fráköst), Stefán Númi Stefánsson 5, Brynjar Grétarsson 4.