Geir Sigurpáll tolleraður eftir sinn síðasta meistaraflokksleik – Myndband

blak throttur hk okt13 kk 0047 webGeir Sigurpáll Hlöðversson, leikmaður karlaliðs Þróttar í blaki, var hylltur í lok leiks liðsins gegn Stjörnunni í gærkvöldi sem varð hans síðasti meistaraflokksleikur. Þróttur tapaði oddaleik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í gær 1-3.

Geir varð fimmtugur í byrjun árs og hefur nú ákveðið að taka sér frí frá meistaraflokki. Geir er vel tengdur í bæði lið. Þrír bræður hans spila með Stjörnunni og sjálfur varð hann sautján sinnum Íslandsmeistari með liðinu. Fimmti bróðirinn, Hlöðver Hlöðversson, þjálfar Þrótt.

Stjarnan vann annars leikinn 3-1 (25-19, 22-25, 25-17 og 25-11) og tryggði sér sæti í úrslitunum gegn HK.

„Við náðum okkur aldrei almennilega á strik. Við áttum fína kafla en þeir voru sterkari. Hlutirnir gengu ekki alveg upp hjá okkur þótt allir legðu sig fram," sagði Hlöðver í samtali við Austurfrétt.

Hann segist heilt yfir ánægður með tímabilið. Þetta er annað árið í röð sem Þróttur sendir lið til keppni í efst deild og í vetur varð það í þriðja sæti í deildakeppninni.

„Tímabilið hefur verið mjög skemmtilegir og menn hafa glaðir tekist á við verkefnin í vetur. Deildin hefur verið jöfn og oft hefur dagsformið ráðið því hverjir hafa sigrað. Þetta er flottur árangur þótt auðvitað hefðum við viljað fara lengra."

Hann segist hafa trú á áframhaldandi þátttöku liðsins í efstu deild. „Við erum mjög vel settir með mannskap og trúi ekki öðru en menn séu klárir í að gefa sig áfram í verkið. Það eru nokkrir sterkir á leiðinni upp en þó má alltaf bæta í hópinn."

 


Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.