Binni Skúla: Ætlaði ekki svona snemma inn á
Innkoma þjálfara Hugins, Brynjars Skúlasonar, á völlinn í leik liðsins gegn Fjarðabyggð á Eskifirði í gærkvöldi gerði gæfumuninn þar sem hann lagði upp jöfnunarmarkið í leik sem Seyðfirðingar áttu fá færi í.„Já – ég get þetta enn – í svona fimm mínútur. Ég ætlaði ekki svona snemma inn á en Tómas (Arnar Emilsson) var með okkur á bekknum og plataði mig í þetta," sagði Brynjar í samtali við Austurfrétt í leikslok.
Hann kom inn á þegar um tuttugu mínútur voru eftir af leiknum en Fjarðabyggð var á 1-0 yfir. Þegar fimm mínútur voru flikkaði hann boltanum inn fyrir vörn Fjarðabyggðar á Alvaro Alvaro sem skoraði og jafnaði.
„Þeir voru sterkari en við en þegar við fórum að pressa þá síðustu 15-20 mínúturnar gáfum við þeim ekkert eftir."
Upplegg Hugins framan af virtist vera að koma löngum boltum fram á Alvaro og vonast til að hraði hans sprengdi vörn Fjarðabyggðar. Það plan þurfti hins vegar að hugsa upp á nýtt eftir að Fjarðabyggð komst yfir í lok fyrri hálfleiks eftir slæm mistök Atla Gunnar Guðmundssonar, markvarðar Hugins.
„Við ætluðum að liggja til baka og gefa á okkur fá færi en það gekk ekki. Atli er búinn að standa sig frábærlega með okkur í sumar og í leiknum en var óheppinn að missa boltann þarna."
Brynjar segir stigið mikilvægt fyrir Huginn. „Það er fínt að fá stig gegn toppliðinu, sérstaklega með tvo menn á bekknum. Við höfum ekki fengið mörg stig hér undanfarið."