100 ára afmæli Hugins Seyðisfirði fagnað: Myndir

huginn 100ara 0008 webSeyðfirðingar og gestir þeirra fögnuðu 100 ára afmæli Íþróttafélagsins Hugins með tveggja daga hátíðahöldum um síðustu helgi.


Hátíðadagskrá var í miðbænum á föstudag. Við það tilefni var Rúnar Freyr Þórhallsson útnefndur íþróttamaður Hugins fyrir árið 2012 en hann leikur með meistaraflokki félagsins í knattspyrnu. Hann á einnig fínan feril að baki í fleiri íþróttagreinum, svo sem skíðum.

Ungmennafélag Íslands afhenti Ingibjörgu Svanbergsdóttur starfsmerki fyrir vel unnin störf í þágu félagsins. Ingibjörg starfaði innan frjálsíþróttadeildar Hugins og síðan frjálsíþróttaráðs UÍA í áraraðir og var þannig lykilpersóna í undirbúningi og framkvæmd Sumarhátíða sambandsins.

Þorvaldur Jóhannsson fékk gullmerki Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands fyrir áratuga starf sitt fyrir Huginn. Þorvaldur var einmitt kynnir á hátíðinni á föstudag auk þess sem hann var formaður ritnefndar sem gaf út veglegt afmælisblað.

Nafnarnir Jóhann Stefánsson og Jóhann Hansson fengu starfsmerki Hugins. Þeir hafa báðir þjónað félaginu dyggilega en sá hinn síðarnefndi var formaður þess í samtals 34 ár.

Hátíðahöldin héldu áfram á laugardag. Um morguninn var á dagskránni táknrænn gjörningur þar sem byrjað var að sprengja fyrir göngum undir Fjarðarheiði.

Í grunnskólanum var sýning á munum úr sögu félagsins og myndasýning sem aðgengileg á YouTube

Þá tók liðið á móti Leikni Fáskrúðsfirði í þriðju deild karla í knattspyrnu og vann 3-1. Með því komst liðið í efsta sæti deildarinnar um stundarsakir.

Um kvöldið var síðan hátíðarkvöldverður og skemmtun í Herðubreið sem um 500 manns sóttu.

huginn 100ara 0004 webhuginn 100ara 0009 webhuginn 100ara 0010 webhuginn 100ara 0011 webhuginn 100ara 0013 webhuginn 100ara 0014 webhuginn 100ara 0018 webhuginn 100ara 0026 webhuginn 100ara 0032 webhuginn 100ara 0043 webhuginn 100ara 0046 webhuginn 100ara 0056 webhuginn 100ara 0059 webhuginn 100ara 0061 webhuginn 100ara 0063 webhuginn 100ara 0066 webhuginn 100ara 0069 webhuginn 100ara 0071 webhuginn 100ara 0078 webhuginn 100ara 0081 webhuginn 100ara 0084 webhuginn 100ara 0087 webinga svanbergs huginn umfi merkithorvaldur johanss isimerki

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.