Izudin Daði: Þurftum stundum í sumar að hringja í menn sem ekkert höfðu æft til að ná í hóp

izudin dadi dervicIzudin Daði Dervic, þjálfari Leiknis Fáskrúðsfirði, segir tímabilið hafa verið erfitt hjá hans liði í sumar þar sem hópurinn hafi ekki verið nógu breiður. Eftir frábæra byrjun tóku við meiðsli og bönn þannig að liðið dróst niður í botnbaráttuna.

„Við vorum að tapa 1-5, þarf að segja meira?“ spurði Daði í samtali við Austurfrétt eftir leik Leiknis og Fjarðabyggðar á laugardag. „Þeir voru betri í leiknum og unnu sanngjarnan sigur. Ég óska þeim til hamingju með fyrsta sætið í deildinni.“

Leiknir komst í fyrra upp úr þáverandi þriðju deild upp í núverandi þriðju deild sem er tíu liða deild leikin á landsvísu. „Þetta er skemmtileg deild en því miður fyrri hin liðin voru Huginn og Fjarðabyggð langsterkust og stungu af.“

Leiknisliðið virtist líklegt í byrjun til að fylgja hinum Austfjarðaliðunum eftir og berjast um sæti í annarri deild. Eftir sigur í fyrstu fjórum leikjunum hrökk allt í baklás og liðið bjargaði sér aðeins frá falli með sigri á ÍH í næst síðustu umferðinni.

Izudin Daði segir að Fáskrúðsfirðinga hafi vantað öflugri hóp til að takast á við kröfurnar í sterkri deild. „Við áttum 11-12 leikmenn sem voru tilbúnir í þessa deild. Við spiluðum mjög vel í fyrstu fjórum leikjunum en misstum svo alla miðjuna í meiðsli, bönn og fleira.

Ég vildi fá fjóra leikmenn í viðbót fyrir tímabilið til að lenda akkúrat ekki í þessu. Í dag vantaði sex leikmenn í byrjunarliðið frá fyrsta leik. Í nokkrum leikjum vorum við 13 á skýrslu eða þurftum að hringja í leikmenn hingað og þangað sem voru ekkert í æfingu til að fylla á hópinn. Við skráðum líka leikmenn á skýrslu sem ekki voru á bekknum til þess að líta betur út.“

Daði vildi ekki segja af eða á um hvort hann yrði áfram þjálfari liðsins. „Ég hef aldrei hugsað strax um næsta sumar. Fyrst fer ég heim og hvíli mig, síðan kemur í ljós hvað maður gerir. Ég er búin að vera hér í þrjú ár og á eftir að ákveða hvort maður heldur þessari vinnu áfram eða fer að gera eitthvað annað.“

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.