Annar leikur Þróttar í kvöld
Þróttur tekur í kvöld á móti nýkrýndum deildar- og bikarmeisturum HK í öðrum leik sínum í úrslitakeppni 1. deildar kvenna í blaki. Leikurinn hefst klukkan 19:30.
Í seinustu viku vann Þróttur KA 3-0 en hrinurnar fóru 25-10, 25-13 og 25-10. Fjögur lið spila í úrslitakeppninni, HK, Þróttur, KA og Fylkir. Leikin er tvöföld umferð, heima og heiman og verður efsta liðið Íslandsmeistari.