Austri og Eskja hvetja börn á Eskifirði til íþróttaiðkunar
Ungmennafélagið Austri á Eskifirði hefur gert samstarfssamning við útgerðarfélagið Eskju með það að markmiði að auka íþróttaiðkun meðal barna á Eskifirði. Þá verður rafíþróttadeild stofnuð innan félagsins í kvöld.Eskja og Austri gerðu nýverið samning sem felur það í sér að Eskja leggur félaginu til fimm milljónir króna á ári til næstu þriggja ára.
„Kannanir hafa sýnt að ástundum íþrótta meðal barna á Eskifirði er lág og hluti þessa styrks fer til að auka áhuga barna á hreyfingu.
Hann nýtist til að styrkja deildirnar okkar, meðal annars er núna tilraunaverkefni í gangi um að bjóða upp á rútuferðir á samæfingar í fótbolta á Reyðarfirði því æfingaaðstaðan hér er takmörkuð, nema fyrir yngstu börnin,“ segir Kristinn Þór Jónasson, formaður Austra.
Ávísun á hreyfingu
Í haust var öllum börnum nemendum í grunnskóla Eskifjarðar, sem og elsta árangi leikskólans, fært gjafabréf upp á 10 þúsund krónur auk þess að fá íþróttabol merktan Austra og Eskju. Gjafabréfinu er ætlað að ganga upp í æfingagjöld, en notkun þess er ekki bundin við Austra.
„Skilyrðið er bara að hann fari í íþróttaæfingar. Það er hægt að nota hann í karate og fleiri greinar sem ekki eru stundaðar innan Austra,“ útskýrir Kristinn.
Þá er hugað að því að bæta aðstöðu til íþrótta á Eskifirði en útikörfuboltavöllur við grunnskólann er á teikniborðinu. Kristinn segir ennfremur mikilvægt að ná til foreldra sem á að gera með fyrirlestrum um hreyfingu. „Það þarf að auka áhuga foreldranna líka.“
Frá tölvunni heima í félagsstarf
Fyrst stendur samt til að stofna rafíþróttadeild innan félagsins en stofnfundur hennar verður haldinn í félagsheimilinu Valhöll í kvöld. Þótt einhverjum kunni að þykja það skjóta skökku við að auka íþróttaiðkun með að æfa tölvuleiki bendir Kristinn Þór á að hlutirnir séu öðruvísi þegar betur sé að gáð.
„Ég hef fylgst með svona deildum í kringum okkur, meðal annars á Höfn og í Reykjavík. Ég hélt fyrst að þetta væri óttalegt bull og börnin væru bara að spila tölvuleiki en það er ekki svo heldur eru þau líka í íþróttaæfingum. Sums staðar eru 90 mínútna æfingar þar sem fyrstu 30 mínúturnar eru hreyfing.
Okkar markmið er að draga krakkana frá því að sitja ein í tölvunni heima og á æfingar í félagsstarf þar sem þau eru með öðrum og hreyfa sig. Það er mjög mikilvægt að draga úr þessari félagslegu einangrun. Ég hef heyrt frábærar sögur af börnum sem fóru í svona starf og blómstruðu í kjölfarið. Okkar deild er á byrjunarstigi en í kvöld ætlum við að ræða hvernig við vinnum þetta áfram.“