Bæði lið Þróttar í bikarúrslitum í fyrsta sinn
Í fyrsta sinn í sögu blakdeildar Þróttar leika bæði karla- og kvennalið félagsins til úrslita í bikarkeppninni. Liðin unnu lið Stjörnunnar í undanúrslitum í gær.
Kvennaliðin mættust fyrst og Þróttur vann 3-0, 23-25, 23-25 og 16-25. Fyrstu tvær hrinurnar voru jafnar. Stjarnan var yfir framan af þeirri fyrstu og Þróttur aðeins yfir í blálokin á annarri hrinu.
Stjarnan var þar yfir 23-19 yfir en sjö stig Þróttar í röð skiluðu sigrinum. Þriðja hrinan var síðan mest öll í höndum Þróttar.
Þróttur mætir Aftureldingu í úrslitum í leik sem hefst klukkan 13:30. Mosfellsbæjarliðið vann KA í undanúrslitum 3-0.
Úrslitin í karlaleiknum voru 3-1 eða 25-20, 13-25, 25-20 og 25-18. Stjarnan hafði yfirburði í þeirri hrinu sem liðið vann. Hinar voru jafnar en góðir kaflar Þróttar um miðbik þeirra lögðu grunninn að sigrinum.
KA verður mótherjinn í úrslitaleiknum sem hefst klukkan 15:30. KA vann HK í oddahrinu í undanúrslitum.
Karlaliðið hefur aldrei orðið bikarmeistari en kvennaliðið hefur fimm sinnum landað bikarnum. Báðir leikirnir verða í beinni útsendingu sjónvarps.