Blak: Fyrsti leikur í úrslitum í kvöld
Þróttur tekur á móti HK í fyrsta leik liðanna í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna í íþróttahúsinu í Neskaupstað í kvöld. Þróttur hefur haft betur í leikjum liðanna í vetur.
Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:30 en það lið sem fyrr vinnur tvo leiki hampar Íslandsmeistaratitlinum. Þróttur hefur haft betur í leikjum liðanna í vetur, nú seinast úrslitum bikarkeppninnar og hreinum úrslitaleik um deildarmeistaratitilinn. Úrslit beggja leikjanna réðust í oddahrinu.
Bæði liðin unnu andstæðinga sínum í undanúrslitum örugglega í tveimur leikjum, HK vann Ými og Þróttur KA.
Annar leikur liðanna verður í Kópavogi á fimmtudagskvöld og oddaleikur, ef þarf, í Neskaupstað á laugardag.
Enginn aðgangseyrir er á leikinn við innganginn verður tekið á móti frjálsum framlögum sem munu renna til fjölskyldu Daniels Krzystztof Sakaluk, sem lést í bílslysi síðasta sunnudag