Blak: Þróttur vann eina hrinu gegn Hamri

Eftir tvo sigurleiki í röð tapaði karlalið Þróttar í blaki 1-3 fyrir Hamri þegar liðin mættust í úrvalsdeildinni í Neskaupstað á laugardag. Liðið á í hörkubaráttu við HK og KA um fjórða sætið og þar með spilarétt í efri hluta deildarinnar á nýju ári.

Hamar hefur verið besta lið landsins í karlaflokki síðustu ár. Í vetur hefur Afturelding fylgt Hveragerðisliðinu eftir en hvort lið hefur aðeins tapað einum leik, það er að segja hvort fyrir öðru.

Þróttur skoraði fyrsta stigið í leiknum en síðan óx forskot Hamars jafnt og þétt þar til hrinunni lauk með 15-25 sigri gestanna. Þróttur varð fyrir blóðtöku þegar uppspilarinn Miguel Angel Ramos Melero meiddist en í stað hans kom heimamaður, Sölvi Hafþórsson sem er 15 ára.

Sömu lokatölur urðu í annarri hrinu. Hún skar sig úr í leiknum fyrir þær sakir að Hamar skoraði fyrsta stigið, annars var það Þróttur.

Þannig var það í þriðju hrinu en þar tókst liðinu að halda forustunni, náði góðu forskoti og kláraði hana 25-14. En síðan fór á sömu leið og áður, Þróttur skoraði fyrsta stigið en Hamar komst fljótt yfir og vann í þriðja sinn 15-25. Raul Garcia Asensio var stigahæstur Þróttar með 19 stig.

Þróttur á í mikilli baráttu um fjórða sæti deildarinnar, sem gefur spilarétt í efri hlutanum þegar hún skiptist í tvo hluta eftir áramót. HK er í því sæti með 16 stig en Þróttur og KA þar á eftir með 15 stig. Þróttur er ofar með betra hrinuhlutfall en KA á leik til góða.

Þróttur á leik gegn Stál-Úlfi á fimmtudag. Á miðvikudag spilar kvennaliðið gegn KA. Þetta eru síðustu heimaleikir liðanna fyrir jól.

Mynd: Blakdeild Þróttar/Sigga Þrúða

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.