Gengið frá ráðningu blakþjálfara hjá Þrótti
Blakdeild Þróttar hefur staðfest ráðningar þeirra Melero og Ramses Ballesteros sem þjálfara meistaraflokka félagsins næsta tímabil.Báðir eru spænskir að uppruna en þekkja orðið ágætlega til blaksins í Neskaupstað eftir að hafa verið þar síðustu ár.
Melero hefur verið þar í fjögur ár. Kom fyrst til að spila með karlaliðinu, varð aðstoðarþjálfari kvennaliðsins og tók við þjálfun þess undir lok síðasta tímabils. Hann verður aðalþjálfari þess.
Ramses tekur við karlaliðinu sem hann spilaði með síðasta vetur. Hann hefur síðustu tvo vetur þjálfað hjá Leikni Fáskrúðsfirði.
Báðir spila áfram með karlaliðinu og koma að reynslu yngri flokka.
Í yfirlýsingu Þróttar segir að spenningur sé fyrir næsta vetri. Útlit sé fyrir að liðin verði blanda af reynsluboltum og yngri og efnilegum blökurum.