Keppnisskapið brýst fram í boccia
„Íþróttin er mjög skemmtileg og og keppnisskapið brýst alveg fram í manni,” segir Dagný Erla Ómarsdóttir, atvinnu-, menningar og íþróttafulltrúi á Seyðisfirði, en fyrir liggur að endurvekja boccia-íþróttina á staðnum í vetur.„Lionsmenn höfðu samband við okkur og langaði svo að endurvekja bocciastarfið hér á Seyðisfirði. Íþróttafélagið Viljinn sem var hér um tíma hélt úti öflugu bocciastarf en það lagðist af um leið og félagið.
Í samstarfi við Lions langar okkur því að láta á það reyna að endurvekja íþróttina hér á staðnum, en það væri góður vettvangur fyrir fólk að koma saman og hafa gaman. Íþróttin er fyrir alla og allir eru jafnir í henni, en það er svo skemmtilegt,” segir Dagný Erla.
Fyrsti tíminn verður í íþróttahúsinu laugardaginn 2. febrúar milli klukkan 12:00 og 13:00. Eldri borgurum, öryrkjum og fötluðum einstaklingum er sérstaklega boðið að koma og taka þátt.