Körfubolti: Berjast fyrir úrslitaleik við Hauka - Myndir
Höttur heldur áfram samkeppni sinni við Hauka á toppi fyrstu deildar karla í körfuknattleik. Liðið vann öruggan sigur á liðinu í þriðja sæti, Álftanesi, á Egilsstöðum um síðustu helgi.Höttur hefur tapað þremur leikjum í vetur, báðum leikjunum til þessa gegn Haukum og á útivelli gegn Álftanesi. Gestirnir fengu að vera aðeins yfir í fyrsta leikhluta en góður kafli Hattar í lok hans bjó til 23-18 forustu.
Í öðrum leikhluta sýndi Höttur klærnar. Sóknarleikur liðsins gekk frábærlega, liðið var með yfir 50% skotnýtingu og af hliðarlínunni virtust öll skot liðsins detta niður. Á sama tíma féll sóknarnýting Álftanes niður í um 30%.
Þetta riðlaði líka leik gestanna. Þeir fóru að taka ótímabær skot sem geiguðu og Höttur hirti fráköstin. Höttur spilaði líka öfluga vörn sem skilaði þó nokkrum stolnum boltum. Í hálfleik var Höttur með sjö stolna bolta gegn einum hjá Álftanesi og með þrjá tapaða bolta gegn átta.
Lætin hófust eftir um þriggja mínútna leik í öðrum leikhluta. Staðan var þá 31-27. Næstu sjö mínútur leikhlutans skoraði Álftanes aðeins fjögur stig en Höttur 22 þannig staðan í hálfleik var 53-31. Látunum linnti ekki fyrr en um miðjan þriðja leikhluta, Höttur var þá kominn í 30 stiga forskot, 68-31 og 86-30 þegar leikhlutanum lauk.
Síðustu fimm mínútur leiksins riðlaðist leikur Hattar. Liðið fór þá að taka óskynsamari skot og láta dóma fara í taugarnar á sér, Arturo Fernandez fór út af með fimm villur en þær tvær síðustu fékk hann fyrir að standa fyrir skyndisóknum Álftaness.
„Við spiluðum mjög vel í 35 mínútur, vorum í góðu stuði og vel gíraðir. Það var partý í gangi með diskókúlu og öllu. Síðan mættu dómararnir og kveiktu ljósin, þá var kominn tími til að fara heim.“
Trú á að fyrsta sætið sé möguleiki
Höttur og Haukar eru jöfn með 36 stig í efsta sætinu, bilið niður í Álftanes er orðið 10 stig. Haukar eiga hins vegar leik til góða en liðin mætast í lokaleik á Ásvöllum í Hafnarfirði. Höttur þarf að vinna sína leiki og treysta á að Haukar tapi einum til að knýja fram hreinan úrslitaleik um efsta sætið, sem gefur beint úrvalsdeildarsæti, þar sem Haukar hafa betur í innbyrðisviðureignum.
„Við verðum að halda áfram að þróa okkur sem lið, vinna okkar leiki og sjá hve langt það kemur okkur, hvort við fáum möguleika á úrslitaleik á Ásvöllum. Við verðum að fókusera á okkur, öðru breytum við ekki. Það er klisja sem er alltaf sönn. Við sáum að hlutirnir gengu ekki upp síðustu fimm mínúturnar hér í kvöld þegar við fórum að hugsa um dómarana og aðra hluti.
Deildin er keppni um fyrsta sætið, síðan sæti 2. – 5. til að komast í úrslitakeppnina. Við teljum okkur eiga möguleika á fyrsta sætinu en annað sætið skiptir líka máli því þá eigum við sterkan heimavöll í úrslitakeppninni.“
Tim Guers var stigahæstur Hattar með 35 stig en Arturo setti 28. Álftanes var án Bandaríkjamannsins Cedric Bowen en hjá Hetti vantaði Matej Karlovic.