Sex frá Hetti í fimleikalandsliðum
Sex strákar frá Hetti voru í gær valdir í landsliðin í hópfimleikum sem taka þátt í Evrópumótinu í haust.Þeir Alexander Þór Helgason og Andrés Ívar Hlynsson eru í landsliði drengja en Ásgeir Máni Ragnarsson, Bjartur Blær Hjaltason, Gísli Már Þórðarson og Þorvaldur Jón Andrésson í blönduðu liði unglinga.
Mótið verður haldið 14. – 17. september í Lúxemborg. Ísland sendir tvö lið í fullorðinsflokki, kvennalið og karlalið. Í unglingaflokki verða send þrjú lið, stúlknalið, drengjalið og blandað lið unglinga. Liðni hefja æfingar í júní og æfa saman fram að mótinu.
Landsliðin samanstanda alls af 81 fimleikaiðkenda. Auk Hattar eiga Afturelding, Fimleikafélag Akureyrar, Gerpla, Keflavík, Selfoss og Stjarnan þar fulltrúa.