Vígsludagskrá á gervigrasvellinum í Neskaupstað frestað
Vígsludagskrá sem far átti fram í dag á endurbættum knattspyrnuvelli í Neskaupstað hefur verið frestað vegna banaslyssins á Vesturöræfum í gær. Leikur KFA og Hattar/Hugins verður í staðinn leikinn í Fjarðabyggðarhöllinni.Tæplega fertugur karlmaður lést í gærmorgun af völdum voðaskots við gæsaveiðar á Vesturöræfum. Í tilkynningu SÚN til Norðfirðinga segir að samfélagið sé lamað vegna þessa sorglega slyss. Vígsludagskrá SÚN-vallarins er því frestað.
Hápunkturinn í dagskránni í dag átti að vera leikur KFA og Hattar/Hugins í annarri deild karla í knattspyrnu. Sá leikur getur ráðið því hvort liðið á áfram möguleika á að komast upp um deild. Leikurinn verður eftir sem áður leikinn klukkan 18:00 í dag en hefur verið færður yfir í Fjarðabyggðarhöllina á Reyðarfirði.
Í tilkynningum KFA, Hattar/Hugins og SÚN eru fjölskyldu og aðstandendum vottuð hin dýpsta samúð.