Eskfirðingar langþreyttir á framkvæmdum við ár bæjarins
„Þetta minnir á sögu Davíðs Oddssonar af tilraunum hans til að hringja í konu sína frá Moskvu um árið,“ segir Ragnhildur Kristjánsdóttir, íbúi á Eskifirði, um rask sem hlaust af framkvæmdum við Ljósá á Eskifirði.„Þetta er framfaraskref fyrir allt og alla“
„Þetta er í rauninni eðlilegt skref eftir að HB Grandi jók umsvif sín, auk þess að vera einn liður í að styrkja net Olís á landabyggðinni,“ segir Samúel Karl Sigurðsson, svæðisstjóri Olís á Austurlandi, en umboð og verslun hefur verið opnuð á Vopnafirði.„Kennarar eru lykilmenn þegar kemur að þjálfun í lestri“
„Stóra upplestrarkeppnin, hefur öll þau ár sem hún hefur verið við lýði, sannað að hún á erindi við börnin og verið stór þáttur í eflingu læsis á miðstigi grunnskóla,“ segir Jarþrúður Ólafsdóttir, kennsluráðgjafi á Skólaskrifstofu Austurlands og umsjónarmaður keppninnar á Austurlandi.Efnahagur skilur á milli þeirra sem geta sótt sér sálfræðiþjónustu
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) auglýsti nýverið eftir tveimur sálfræðingum til starfa. Enginn sálfræðingur hefur verið fastráðinn hjá stofnuninni frá haustinu 2015 þar sem ekki hefur tekist að ráða í stöðurnar. Forstjóri HSA segir verst að sumir treysti sér ekki til að nýta þá sálfræðiþjónustu sem þó er í boði í fjórðungnum vegna kostnaðar.Berufjarðarbotn: Vegagerðin bíður ákvörðunar ráðherranna
Vegurinn um Berufjarðarbotn er enn á lista yfir fyrirhuguð útboð í nýjasta hefti Framkvæmdafrétta Vegagerðarinnar. Talsmaður Vegagerðarinnar segir þann lista ekki hafa neina sérstaka stöðu sem stendur.
Mikill viðbúnaður vegna ótta um að börn hefðu orðið undir snjónum
Mikill viðbúnaður var við Fjarðabyggðarhöllina á Reyðarfirði um klukkan tvö í gær eftir að óttast var að börn hefðu orðið undir snjóflóðið sem hrundi af þaki Fjarðabyggðarhallarinnar.„Það er orðið tímabært að karlmenn láti sig þessi mál varða“
„Þetta er mikið vandamál, en staðreyndin er sú að það er allskonar fræðsla í boði en ef það er eitthvað sem tengist geð- eða forvarnarmálum, þá mæta bara konur,“ segir Margrét Perla Kolka sem fer fyrir forvarnarteymi Verkmenntaskóla Austurlands.Áhugi á ferð um Gullna hringinn og Austurland að vetri
Seyðfirski ferðaskipuleggjandinn One Stop Shop hefur hafið sölu á vetrarferðum þar sem bæði er farið um lykilstaði á Suðurlandi og Austurlandi. Stjórnandinn segir hugarfarsbreytingar þörf til að selja Austurlandi að vetri til.
Áhættusvæðin verða betur greind og girt af
„Ég ætla ekki að segja þér hvað við vorum lengi á leiðinni,“ segir Björn Einarsson, formaður Björgunarsveitarinnar Ársólar á Reyðarfirði, en lögreglan veitti sveitinni leyfi til forgangsaksturs eftir að útkall á háum forgangi barst vegna snjóflóðs af þaki Fjarðabyggðarhallarinnar á Reyðarfirði í gær.
Austurland hástökkvarinn í nýtingu hótelherbergja: Tækifæri þegar þéttist á öðrum stöðum
Mesta aukning í nýtingu hótelherbergja á tímabilinu nóvember-janúar er á Austurlandi. Nýtingin nú er nær þrefalt betri en fyrir ári. Sérfræðingur segir Austurland vekja athygli þegar önnur svæði sé að fyllast.
Orlof skal alltaf tiltekið á launaseðli
Austfirskt útgerðarfyrirtæki hefur verið dæmt til að greiða fyrrum starfsmanni tæpar 450 þúsund krónur í vangoldið orlof. Útgerðin telst bera allan halla af því að orlof var ekki skráð á launaseðil sjómannsins.