„Ég hef sterka tilfinningu fyrir því að þetta sé mjög fornt hús"
„Við fundum klár merki um mannabústað," segir Dr. Bjarni Einarsson, fornleifafræðingur, en í dag var grafin rannsóknarhola við Stöð í Stöðvarfirði í kjölfar þess að forkönnun á svæðinu sýndi fram á mögulegan landnámsskála á svæðinu.Hefur þú eitthvað að segja um þjóðdansa eða súrsun matvæla?
Óáþreyfanlegur menningararfur verður á dagskrá þriggja umræðu- og kynningarfunda sem haldnir verða á Austurlandi næstu daga og verður sá fyrsti á Vopnafirði í dag.Rithöfundalest(ur) á Austurlandi
Árviss rithöfundalest fer um Austurland helgina og í henni verða verða kunnir höfundar með nýjustu verk sín, ásamt austfirskum höfundum og þýðendum.Sveitarfélögin vilja fresta skattaálögum á almenningssamgöngur
Aukinn virðisaukaskattskylda ferðaþjónustuaðila gæti aukið útgjöld sveitarfélaga. Frá áramótum ber verktökum sem sinna fólksflutningum að innheimta virðisaukaskatt af vinnu sinni. Forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs segir breytinguna setja samninga um almenningssamgöngur í uppnám.Ferðaþjónustan í vaskinn: Ógnvekjandi fyrir suma að innheimta skatt
Sérfræðingur segir fyrirhugaðar breytingar á lögum um virðisaukaskatt vaxa mörgum í augum. Breytingin snertir einkum aðila í ferðaþjónustu sem til þessa hafa undanþegnir virðisaukaskattinum.„Myndi giska á 60/40 – okkur í hag"
„Við byrjum klukkan níu í fyrramálið og ég stefni á það að niðurstaða liggi fyrir seinnipartinn," segir Bjarni Einarsson, fornleifafræðingur, en hann mun á morgun grafa rannsóknarholu við Stöð í Stöðvarfirði, en forkönnun á svæðinu hefur sýnt fram á mögulegan landnámsskála á svæðinu.Alþjóðleg arkitektastofa sigraði í samkeppni á Borgarfirði
Tillaga Anderson & Sigurdsson hlaut fyrstu verðlaun í hönnunarsamkeppni um aðstöðubyggingu fyrir ferðamenn og sjómenn í Hafnarhólma á Borgarfirði eystra. Annar aðalarkitektanna segir markmiðið hafa verið að hanna byggingu sem falli vel inn í umhverfið.Markmiðið er að byggja að austanverðu við höfnina aðstöðubyggingu fyrir sjómennsku og ferðamennsku. Hafnarhólminn er orðinn einn fjölsóttasti ferðamannastaður Austurlands en þar er einstök aðstaða til að komast í návígi við lunda og fleiri sjófugla en borgfirskir sjómenn gera einnig þaðan út.
Tíu tillögur bárust í hönnunarsamkeppni um aðstöðuhúsið en tillaga Anderson & Sigurdsson varð hlutskörpust.
Í umsögn dómnefndar segir að tillagan sé falleg, látlaus og líkleg til að fanga athygli ferðamanna, án þess að skyggja um of á náttúru og umhverfi. Grunnmyndir séu skýrar og flæði vel leyst.
Unnið sé faglega með dagsbirtu og útsýni frá byggingunni. Tillagan sé hagkvæm til útfærslu en gera hefði þurft betur grein fyrir fyrirkomulagi bílastæða, stígum og aðkomu.
Lögðu upp með látlausa byggingu
Þórhallur Sigurðsson stýrir stofunni ásamt danskri konu sinni. Stofan er staðsett í Danmörku og auk hjónanna mynduðu Pólverji og Frakki hið alþjólega lið að baki tillögunni.
„Í flestum tilfellum sendum við mann á staðinn en að þessu sinni var langt að fara og því ekki annað að gera en viða af okkur gögnum."
Hann segir markmiðið hafa verið að leggja fram tillögu sem félli vel að fögru umhverfi. „Spurningin er alltaf hvort þetta eigi að vera bygging sem hrópar út á við eða dregur sig til baka og er hlutlaust gagnvart umhverfinu.
Það má segja að við höfum valið seinni leiðina, að vinna með hið látlausa og einfalda en gefa henni um leið ákveðið tvist. Við vonumst til að bjóða upp á góða rýmisupplifun, birtu og útsýni – við bjóðum reyndar ekki upp á það en reynum að ramma það eins vel inn og hægt er."
Heiður að vinna fyrstu verðlaun
Hugmyndin er um þriggja hæða teningslaga byggingu, 10x10x10 metra þar sem hver hæð er fleyguð til að falla inn í landslagið og mynda útirými fyrir hæðirnar. Á fyrstu hæð verði aðstaða fyrir hafnarvörð, á annarri veitingaaðstaða, sýningar á þeirri þriðju og útsýnispallur af þakinu. Byggingarefnið er að mestu steinsteypa en lerki notað í innréttingar.
Halli sagðist ánægður með framtak Borgfirðinga. „Það er stórkostlegt að á svona litlum stað velji menn að fara í samkeppni um svona lítið hús. Það hefur verið kallað eftir að menn hugi að því hvernig þeir sinni ferðamennskunni og þetta er dæmi um það.
Það er heiður fyrir okkur að vinna fyrstu verðlaun og frábært fyrir mig að hafa heimsótt staðinn. Það gefur okkur gott veganesti til að vinna áfram. Það er mikilvægt að koma sér inn í hugarfarið, í landið og sjóinn. Það hjálpar mér að hafa sótt sjóinn sjálfur. Við viljum lifa okkur inn í landslagið og starfsemina."