Á strandstað í Vöðlavík 20 árum síðar -Myndir
Á annað hundrað gestir lögðu leið sína í Vöðlavík síðastliðinn föstudag þar sem afhjúpaður var minnisvarði í Vöðlavík í tilefni af því að 20 ár eru liðin frá tveimur fræknum björgunarafrekum þar.Þann 18. desember 1993 var fimm skipverjum af Bergvíkinni bjargað í land með línu af strandstað af austfirskum björgunarsveitum. Þann 10. janúar bjargaði þyrlusveit bandaríska varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli sex af sjö áhafnarmeðlimum Goðans sem var að reyna að draga Bergvíkina af strandstað. Einn skipverji lést, Geir Jónsson, stýrimaður.
Björgunarafrekið vakti upp mikla umræðu um nauðsyn þess að efla þyrlusveit Landhelgisgæslunnar enda var það gert í kjölfarið. Afrekið vakti einnig athygli innan hersins og er það verk sem flestar viðurkenningar hafa verið veittar fyrir á friðartímum.
Björgunarsveitirnar Brimrún á Eskifirð og Gerpir í Neskaupstað stóðu fyrir gerð minnisverksins og athöfninni en Gary Copsey, aðstoðarflugmaður annarrar bandarísku þyrlanna, afhjúpaði minnisvarðann.
Áhöfn TF-Syn, þyrlu Landhelgisgæslunnar, tók þátt í afhöfninni og æfði björgun af sjó með austfirskum björgunarsveitum þar sem björgunarskipið Hafbjörg úr Neskaupstað fór fremst í flokki.
Þá voru við athöfnina meðlimir úr bandaríska flughernum sem eru á landinu í tengslum við lofthelgivörslu Íslands.