Hafdís Huld á tónleikaferðalagi um Austfirði
Tónlistarkonan Hafdís Huld er þessa dagana á ferð um landið til að kynna þriðju sólóplötu sína. Hún heldur tvenna tónleika af því tilefni á Austfjörðum.Platan Home kom út í Bandaríkjunum og Evrópu nú í vor og hefur fengið frábæra dóma. Með Hafdísi Huld á ferðalaginu er gítarleikarinn Alisdair Wright en saman hafa þau komið fram á mörgum af stærstu tónlistarhátíðum heims. Á dagskránni eru lög af sólóplötum Hafdísar Huldar sem og vel valin íslensk lög.
Hafdís Huld og Alisdair verða á Cafe Sumarlínu á Fáskrúðsfirði í kvöld og í Kaupvangskaffi á Vopnafirði á morgun, mánudag.
Báðir tónleikarnir hefjast klukkan 20.00 og miðaverð er 2000 kr.