Austfirðingur með flottasta skeggið á Íslandi?
Fyrir skemmstu hóf vefmiðilinn menn.is leitina af „flottasta skeggi Íslands“. Það bárust 150 skráningar í keppnina og hefur nú dómnefnt valið tíu skeggjaða einstaklinga til að keppa til úrslita og að sjálfsögðu eigum við Austfirðingar okkar fulltrúa.Kristófer Nökkvi Sigurðsson frá Egilsstöðum er þarna efstur á lista og þykir sigurstranglegur. Hann er fæddur og uppalinn á Egilsstöðum og er sonur Höllu Eyþórsdóttur og Sigurðar Hlíðars Jakobssonar.
Kosning stendur nú yfir og getur þú lagt þitt að mörkum til að tryggja okkar manni sigur. Finnst Þér Kristófer vera með flottasta skegg landsins? Smelltu HÉR til að gefa honum þitt atkvæði til að sjá meðkeppendur hans. Kosning er til 19. apríl næstkomandi.
Sá sem ber sigur úr bítum í keppninni „Flottasta skegg Íslands 2015“ hlýtur merktan bikar og viðurkenningarskjal. Auk þess fær sigurvegarinn Klippingu og skeggsnyrtingu frá Sjoppunni, Mennska skeggolíu, út að borða fyrir tvo á Steikhúsið, flösku af Bulleit viskí og sérstakt skeggsnyrtisett frá fatabúð Kormáks og Skjaldar.
Áfram Kristófer!
Myndir: menn.is