Kórfélagar skemmtu flugfarþegum sem biðu - Myndband
Farþegar sem áttu bókað í beint flug frá Egilsstöðum til Dyflinnar í gær komust loks í loftið eftir þrettán tíma í bið í gærkvöldi. Ýmislegt var gert til að stytta biðina.Flugið átti upphaflega að fara klukkan 7:30 í gærmorgun en vélin fór ekki í loftið fyrr en rúmlega átta um kvöldið.
Þeir voru hins vegar boðaðir fyrr út á flugvöllinn og þurftu því að bíða nokkurn tíma. Menn gerðu þó sitt besta til að stytta biðina og karlakórinn Drífandi tók lagið í biðsalnum, en kórfélagar voru á leið í árshátíðarferð sína.
Um 180 farþegar lentu síðan í Dyflinni um klukkan hálf ellefu í gærkvöldi eftir notalegt flug.
Karlakórinn Drífandi lætur ekki töf á flugi til Dublin skemma stemminguna í hópnum og tekur lagið í flugstöðinni meðan beðið er eftir flugvélinni
Posted by Egilsstaðir International Airport on Thursday, 29 October 2015