Páll Rósinkranz með tónleika á Breiðdalsvík
Austurland iðar af lífi í skammdeginu og helgin er undirlögð af ýmisskonar viðburðum tengdum Dögum myrkurs.Meðal efnis á Dögum myrkurs er:
Unghljómsveitin MurMur verður með tónleika í Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði í kvöld klukkan 21:00.
Hljómsveitin Eva er með tónleika á Kaffi Láru í kvöld klukkan 21:00.
Páll Rósinkrans verður með tónleika í „nýja sal frystihússins" á Breiðdalsvík á laugardagskvöld klukkan 21:00.
Heimildarmyndaveisla verður í Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs á laugardag klukkan 17:00. Sýndar verða myndirnar Berjast, berjast, berjast! 2014 og Bræðslan 2013.
Útgáfuhóf bókarinnar Eins og stelpa verður í Bókakaffinu Hlöðum í Fellabæ á morgun klukkan 17:00.
Hér má sjá ítarlega dagskrá fyrir Daga myrkurs.