Skógræktarráðstefnu frestað vegna veðurs

hallormsstadarskogurBúið er að fresta ráðstefnu sem halda átti í tilefni sjötugs afmælis Jóns Loftssonar, fráfarandi skógræktarstjóra, á Egilsstöðum á morgun vegna veðurs. Stefnt er að því að hún verði haldin í janúar.

Öllu innanlandsflugi í Egilsstaði var aflýst í dag og veðurspáin fyrir morgundaginn er ekki góð. Að auki er færð á fjallvegum slæm.

Í tilkynningu frá Skógræktinni segir að um 150 manns hafi skráð sig á ráðstefnuna sem þar með yrði ein stærsta skógræktarráðstefna sem haldin hefur verið.

Stefnt er að því að dagskrá ráðstefnunnar verði lítið eða ekkert breytt. Á henni átti að skoða þróun í íslenskri skógrækt síðustu 70 árin og horfa jafn langt fram í tímann.

Að ráðstefnunni lokinni verður haldið kveðjuhóf til heiðurs Jóni Loftssyni sem lætur af starfi skógræktarstjóra um áramótin eftir 26 ára starf í því embætti.

Þeim sem bókað höfðu flugfar vegna ráðstefnunnar er bent á að afbóka það hið fyrsta.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar