Afmælishátíð Súlunnar
Afmælishátíðin
hefst á laugardaginn kl. 14:00 með vígslu nýs sparkvallar. Að því loknu fer
fram Róbert Jack-mótið í knattspyrnu en þar etja heimamenn kappi við nágranna
sína úr Breiðdal. Þar á eftir bjóða sveitarfélagið Fjarðabyggð og KSÍ gestum
upp á kaffiveitingar.
Hátíðardagskráin
heldur áfram kl. 17:00 en þá sýnir leikhúsið Frú Norma leikverkið Soffía mús á
tímaflakki. Frú Norma er eina atvinnuleikhús á Austurlandi og gaman er að segja
frá því að höfundur leikverksins og tónlistarinnar við það, systurnar Sigríður
Lára og Bára Sigurjónsdætur eru einnig héðan að austan.
Klukkan 20:00 fer
síðan fram golfmót á golfvelli staðarins.
Hátíðin heldur
áfram á sunnudag og hefst þá dagskráin með sprelli í sundlaug staðarins kl.
11:00. Sundlaugin er einmitt 25 ára á þessu ári. Þarna verður sprellað eitthvað
fram eftir degi.
Árlegt
minningarhlaup um Önnu Maríu verður hlaupið kl. 14:00.
Að síðustu verður
svo k. 16:00 haldin grillveisla á ræktarsvæði skógræktarfélagsins Nýgræðings.
Það félag fagnar einmitt einnig stórafmæli í ár en það er 65 ára.