Alcoa styrkir hreinsun stranda í Fjarðabyggð
Samfélagssjóður Alcoa hefur veitt tæplega fjögurra milljóna styrk til hreinsunar á strandlengju Fjarðabyggðar. Sjálfboðaliðar frá Fjarðaáli hafa að auki tekið þátt í verkefninu.Sveitarfélagið, í samvinnu við nokkur félagasamtök á svæðinu, stendur í sumar fyrir strandhreinsunarverkefni. Ætlunin er að hreinsa strandirnar í öllum fjörðum Fjarðabyggðar.
Nýverið veitti samfélagssjóður Alcoa 3,7 milljónum króna til verkefnisins sem nýtist í að greiða kostnað við hreinsunina.
Í lok júní tóku sjálfboðaliðar úr hópi starfsmanna álversins á Reyðarfirði sig til og hreinsuðu fjöruna frá álverslóðinni út með Hólmum og út í Hólmanes. Unnið var í fjóra tíma og tóku alls 22 sjálfboðaliðar þátt í hreinsuninni.
Þeim innan handar voru félagar úr björgunarsveitinni Ársól á Reyðarfirði sem fjarlægðu ruslið sem safnaðist, en það var umtalsvert og Anna Berg Samúelsdóttir, umhverfisstjóri Fjarðabyggðar.