Auglýst eftir forstöðumanni Breiðdalsseturs
Breiðdalshreppur auglýsir stöðu forstöðumanns Breiðdalsseturs á Breiðdalsvík. Starfið felur í sér framkvæmdastjórn er varðar starfsemi, þróun og eftirfylgni við uppbyggingu og rekstur á starfsemi Breiðdalsseturs í Gamla kaupfélagshúsinu. Starfsstöð er á Breiðdalsvík.
Breiðdalssetur er umgjörð um þá starfsemi sem verið er að þróa í Gamla kaupfélagshúsinu á Breiðdalsvík. Gamla kaupfélagið, sem er elsta húsið á Breiðdalsvík reist árið 1906, hefur verið í endurbyggingu sl. ár. Húsinu er ætlað að vera miðstöð menningar, sögu og þekkingar í víðum skilningi. Þar verða þrjár megin stoðir lagðar til grundvallar: Jarðfræði, byggð á verkum breska jarðfræðingsins George P.L. Walkers, málvísindi þar sem horft verður til Breiðdælingsins dr. Stefáns Einarssonar og þar að auki saga hússins, þorpsins og byggðarlagsins. Stefnt er að því að byggja upp aðstöðu og taka á móti erlendum og innlendum nemendum í greinum sem tengjast starfseminni auk ferðamanna.