Bókabúðin Eskja lifnar við

Bókabúðin Eskja hefur opnað dyr sínar á Eskifirði á ný. Að þessu sinni stendur Heiða Skúladóttir að baki henni og verslar með safnaravörur, gjafavörur og býður jafnvel upp á rúnalestur.

Bókabúðin Eskja er gamalkunnugt heiti og var þekkt fyrir sölu á prjónadóti, bókum og gjafavöru. Hún hefur hins vegar ekki verið starfrækt síðustu árin, en grunnurinn var til staðar í húsnæði hennar að Útkaupstaðarbraut 1, þar sem Verslun Elísar Guðnasonar var áður.

„Ég man eftir búðinni frá því ég var yngri, þótt ég hafi ekki verslað mikið í henni. Ég hef hins vegar orðið vör við að Eskfirðingar halda mikið upp á bæði búðina og húsið,“ segir Heiða, sem er uppalin á Fljótsdalshéraði og hefur búið þar síðustu ár.

Inni í búðinni, sem jafnframt inniheldur flóamarkaðinn Sveskju, kennir ýmissa grasa. Heiða sýnir okkur gamlar amerískar teiknimyndasögur í möppu og bendir upp á hillu þar sem standa japanskar anime-dúkkur. „Ég ætla að nota sumarið til að spyrja Eskfirðinga hvað þeir vilja hafa hér. Ferðamenn sem hafa rekið inn nefið finnst gaman að skoða búðina og eru hissa á að sjá til dæmis japönsku dúkkurnar.“

Les í rúnir


Uppi á vegg hangir líka skilti þar sem boðið er upp á rúnalestur, ef pantað er með fyrirvara. „Fyrir um 20 árum opnaði ég nornabúð í Reykjavík með Evu Hauksdóttur, nú lögfræðingi. Sú búð rataði í fjölmiðla víða um heim. Þar vorum við að spá í rúnir og tarot. Ég kann þetta enn, en ég nenni ekki tarotinu lengur.

Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á þessum gamla tíma. Ég las mér til í Snorra-Eddu, en líka í efni frá Bretlandseyjum frá drúídum. Mér finnst gaman að bera þennan boðskap áfram þannig að næstu kynslóðir þekki hann.“

Lengri útgáfa birtist í Austurglugganum. Hægt er að panta áskrift hér.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.