Bremsurnar biluðu
Bilaðar bremsur voru aðalástæða þess að rúta með 38 farþegum fór út af í Bessastaðafjalli í lok ágúst. Þetta kemur fram í skýrslu Rannsóknarnefndar umferðarslysa sem kom út í dag.
Sjálfvirkar útíherslur
voru skemmdar í þremur hjólum af fjórum. Bremsuskál þess hjóls þar sem herslan
var í lagi hitnaði meira en aðrar sem er merki um meira álag. Rannsóknarnefndin
leggur til að reglulegum bremsuprófunum hópbifreiða verði fjölgað.
Ofsahræddir farþegar reyndu að komast út
Í skýrslunni er
haft eftir ökumanninum að hann hafi ofarlega í brekkunni skipt um gír til að
hægja á henni. Að auki hafi hann beitt mótorbremsu, handbremsu og fótbremsu.
Fljótlega áttaði hann sig á að rútan var næsta bremsulaus. Hann lét farþega
vita og leitaði að heppilegum stað til að keyra út af.
Mikill ótti greip
um sig meðal farþega. Sumir stóðu upp og reyndu að komast út. Einum tókst það
og meiddist mikið. Margir stóðu þegar rútan fór út af og þeir köstuðust framarlega
í hana þegar hún stöðvaðist.
Rétt viðbrögð bílstjóra
Bílstjórinn hafði
ekki keyrt rútuna áður og sjaldan keyrt niður Bessastaðafjall. Í skýrslunni
segir að hann hafi gert rétt þegar hann valdi útafakstursstað og kom þannig í
veg fyrir að rútan ylti.
Samkvæmt
ökuritaskífu var rútan á um 60 km/klst hraða þegar hún kom í brekkuna og 38
km/klst þegar rútan fór út af.
Sætin losnuðu
Ástandi sæta,
sætisfestinga og bílbelta var mjög ábótavant. Fjórir sætisbekkir í rútunni
losnuðu alveg og tólf færðust úr stað. Skipt hafði verið um sæti í rútunni síðan
hún var framleidd. Festingar nýju sætanna pössuðu ekki við sleða fyrir
sætafestingar yfirbyggingarinnar.
Bílbelti hjálpuðu
þeim lítið sem voru í sætum þar sem sætisfestingar voru ekki í lagi. Fimm
farþegar voru enn í sætum sínum þegar rútan stöðvaðist.
Starfshópur sem aldrei var skipaður
Rannsóknarnefndin
vill að tryggt verði að viðhaldi og viðgerð öryggisbúnaðar hópbifreiða verði
einungis sinnt af aðilum sem hafa til þess sérþekkingu. Bent er árið 2000 hafi
nefnd á vegum dómsmálaráðherra lagt til að öryggisbelti í hópbifreiðum yrði
lögleidd. Sú nefnd vildi að skipaður yrði starfshópur sem gerði úttektir á frágangi
og festingum ísettra öryggisbelta. Sá hópur var aldrei skipaður.
Rannsóknarnefndin
telur nauðsynlegt að skoða vandlega frágang sæta í þeim hópbifreiðum sem bílbeltum
hefur verið bætt í á Íslandi. Þessi máli eigi tafarlaust að taka til skoðunar.
Vegmerkingum ábótavant
Umhverfi vegarins
þykir varhugavert og merkingum ábótavant. Rannsóknarnefndin telur að betur
hefði mátt merkja hve vegurinn er brattur og beygjur krappar, í ljósi þeirra
slysa sem orði hafa á staðnum. Umhverfi vegarins við beygjuna þykir ekki gott
þar sem mjög bratt er fram að veginum
Rannsóknarnefndin
lagði til að malarpúði yrði gerður við beygjuna sem hægt væri að stýra bílum út
á ef bílstjórar sæju ekki fram á að ná beygjunni. Eigandi vegarins,
Landsvirkjun, lét gera hann í haust. Fyrirhugað er að setja upp fleiri merki
til viðvörunar og um leiðbeinandi hraða.
Góð viðbrögð viðbragðsaðila
Níu hlutu mikil
meiðsli í slysinu en alls slösuðust sextán. Tólf voru fluttir með sjúkraflugi
til Reykjavíkur og Akureyrar en fjórir með sjúkrabifreiðum til Norðfjarðar. Nefndin
telur viðbrögð viðbragðsaðila við hópslysinu hafa verið góð og björgun gekk
snurðulaust fyrir sig.
Rútan var af
gerðinni Mercedes Benz með sætum fyrir 41 farþega. Hún fékk skoðun án athugasemda
í maí 2007.
Fréttamynd Egils
Gunnarssonar af rútuslysinu, ljósmyndara á vegum Austurgluggans, er meðal mynda
á sýningu sem haldin er í tilefni 112 dagsins. Sýningin er á fyrstu hæð
Kringlunnar.
Skýrsluna í heild
sinni má lesa með að smella hér .