Diddú og Egill í Kirkju- og menningarmiðstöðinni í Fjarðabyggð
Kirkju- og menningarmiðstöðin í Fjarðabyggð býður Austfirðingum á glæsilega tónleika um næstu helgi. Marka þeir upphaf aðventunnar og ættu að koma fólki í rétta skapið fyrir aðdraganda jóla. Kór Fjarðabyggðar heldur þá sína árlegu aðventutónleika og hefjast þeir í menningarmiðstöðinni á Eskifirði kl. 16.
Frumflutt verður jólalag Austurlands 2008 eftir Austfirðinginn Stefán Arason, sem útsett er fyrir hljómsveit, kór, barnakór og tvo einsöngvara. Sérstakir gestir á tónleikunum verða tveir af okkar bestu söngvurm, þau Egill Ólafsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir, ásamt barnakórum úr Fjarðabyggð.
Allar nánari upplýsingar um dagskrá má sjá á www.tonleikahus.is en miða má nálgast í útibúum Landsbankans í Fjarðabyggð og við innganginn.Stjórnandi er Kári Þormar