Elvar Jónsson,
fyrrverandi aðstoðarþjálfari Fjarðabyggðar, verður ekki næsti þjálfari 2. deildar liðs Hvatar frá Blönduósi. David
Hannah er nýr aðstoðarþjálfari Magna Fannberg.
Í tilkynningu sem
Fjarðabyggð sendi frá sér í gær segir að breytingin hafi verið ljós um leið og
David samdi við félagið og í fullri sátt við Elvar. Hann var í haust orðaður
við Hvöt en liðið réði Kristján Óla Sigurðsson. Sá hætti í seinustu viku og í
frétt á vef Hvatar er þessum möguleika velt upp. „Elvar.... ertu ekki á
leiðinni? Við getum alveg sótt þig sko“
Í samtali við
Austurgluggann í gær hafnaði Elvar þessum möguleika. Hann sagðist sáttur við að
víkja fyrir Hannah og að hann vildi ekki rífa sig og fjölskyldu sína upp frá
Norðfirði.
Tveir leikmenn
Fjarðabyggðar eru í láni hjá Hvöt.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.