Þýðendur íslenskra bókmennta þinga á Hala og í Reykjavík

Dagana 23.- 26. apríl verður haldið á Hala í Suðursveit og í Reykjavík alþjóðlegt þýðendaþing. Von er á 24 þýðendum erlendis frá en þeir koma frá Þýskalandi, Spáni, Póllandi, Danmörku, Englandi, Frakklandi, Hollandi, Rússlandi, Tékklandi, Noregi og Svíþjóð. 9 þýðendur sem búsettir eru hér á landi taka líka þátt í þinginu. Fjallað verður um íslenskar bókmenntir, vanda og vegsemd þýðandans og meðal annars sagt frá verkefninu „Sagenhaftes Island“, þýðingar- og kynningarátaki í tilefni þess að Ísland verður heiðursgestur bókasýningarinnar í Frankfurt árið 2011. 

bkur.jpg

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra setur þingið kl. 10 föstudaginn 24. apríl í sal Þjóðminjasafnsins og opnar af því tilefni vefsíðu „Sagenhaftes Island“ verkefnisins en slóðin er www.sagenhaftes-island.is.

Af þessu tilefni stendur Rithöfundasamband Íslands fyrir dagskrá í Iðnó sem kallast „Nýjabrumið í íslenskum bókmenntum“ en þar munu níu skáld og rithöfundar af yngri kynslóðinni kynna verk sín. Þetta eru þau Kristín Svava Tómasdóttir, Kári Páll Óskarsson, Emil Hjörvar Petersen, Arngrímur Vídalín, Sigurlín Bjarney Gísladóttir, Guðmundur Óskarsson, Bjarni Klemenz, Óttar Martin og Ófeigur Sigurðsson. Benedikt Hjartarson bókmenntafræðingur flytur erindi um nútímaskáldskap íslenskan og hljómsveit Tómasar R. Einarssonar annast tónlistarflutning. Dagskráin fer fram í Iðnó fimmtudaginn 23. apríl og hefst kl. 21. Hún er öllum opin og ókeypis.

Það eru „Sagenhaftes Island“ verkefnið, Bókmenntasjóður, Rithöfundasamband Íslands og Félag íslenskra bókaútgefenda í samstarfi við Háskólasetur H.Í. á Höfn, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum sem standa að þinginu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.