Eskfirðingur í eldlínunni
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hefur staðið í eldlínunni síðustu vikur við að reyna að hamla útbreiðslu kórónaveirunnar á Íslandi. Það sem færri vita er að Þórólfur er að hluta til alinn upp á Eskifirði.Þórólfur sem er fæddur árið 1953 fluttist til Eskifjarðar frá Hvolsvelli með foreldrum sínum, Valgerði Þórðardóttur úr Austur-Landeyjum og Guðna B. Guðnasyni úr Hvolhreppi er Guðni var ráðinn kaupfélagsstjóri í lok árs 1955.
Þórólfur rifjaði stuttlega upp barnæskuna á Eskifirði í fyrirlestri sem hann hélt í tilefni 20 ára afmælis Heilbrigðisstofnunar Austurlands á Reyðarfirði þann 19. mars í fyrra og sagðist hafa kunnað vel við sig þar.
Guðni gat sér góðan orðstír sem kaupfélagsstjóri á Eskifirði og úr varð að fjölskyldan fluttist til Vestmanneyja þegar Þórólfur var níu ára gamall. Tíu árum síðar flutti fjölskyldan upp á fastalandið og greina ritaðar heimildir um kaupfélagssögu Vestmannaeyja frá því að eftirsjá hafi verið af Guðna úr Eyjum.
Afburða námsmaður
Þegar haft er í huga sú barátta sem Þórólfur stendur í nú um stundir kann að vera hughreystandi að honum gekk einkar vel í skóla. Í Framsóknarblaði Vestmannaeyja árið 1966 má finna tíðindi af skólalokum barnaskólans þar sem segir að Þórólfur Guðnason í sjötta bekk hafi fengið hæstu einkunn á barnaprófi, 9,5. Fyrir árangurinn fékk hann viðurkenningu frá skólanum, auk verðlauna frá Rótarý fyrir besta árangur í íslensku.
Velgengni Þórólfs í námi hélt áfram þegar lengra komið. Í Árbók Háskóla Íslands árið 1981 má finna einkunnir þeirra sem luku embættisprófi í læknadeild þá um borið. Þar er Þórólfur með hæstu einkunnina, 8,8.
Sérfræðingur í barnalækningum
Þórólfur fór í framhaldsnám í barna- og smitsjúkdómalækninum í Bandaríkjunum en réði sig til starfa á Barnaspítalanum að því loknu árið 1990. Hann tók við núverandi starfi sem sóttvarnalæknir haustið 2015, en hafði bæði verið settur sóttvarnalæknir og yfirlæknir smitsjúkdóma í rúman áratug þar á undan.
Árið 2014 varði hann doktorsritgerð sína í lýðheilsuvísindum. Umfjöllunarefni hennar var faraldsfræði, áhættuþættir og íhlutandi aðgerðir gegn pneumókokkum á íslenskum leikskólum og byggði á áralöngum rannsóknum Þórólfs.
Ötull talsmaður bólusetninga
Í starfi sínu hefur Þórólfur verið ötull talsmaður bólusetninga og varað við áhrifum lyfjaónæmra baktería. Hann stóð í framvarðasveit íslensks heilbrigðisstarfsfólks þegar síðasti heimsfaraldur inflúensu, svínaflensan, geisaði 2009-10. Íslendingar bólusettu gegn faraldrinum og í viðtali við Fréttablaðið nokkrum árum seinna sagði Þórólfur að þær aðgerðir hefðu sparað landsmönnum 20.000 sýkingar, 70 sjúkrahúsinnlagnir, 7 innlagnir á gjörgæsludeild og eitt dauðsfall.
Hann hefur látið sig fleiri mál varða, til dæmis útbreiðslu HIV og þar talað fyrir úrræðum fyrir sprautufíkla á borð við Frú Ragnheiði. Hann hefur einnig bent á heilsufarsógnir sem steðja að mannkyninu vegna loftslagsbreytinga, svo sem loftmengun.
Í Læknablaðinu frá árinu 2018 má finna skeytasendingar milli Þórólfs sem sóttvarnalæknis og Magnúsar Gottfreðssonar, sérfræðings í smitsjúkdómum, um styrk íslenska heilbrigðiskerfisins, einkum Landsspítalans, til að takast á við farsóttir. Þar benti Þórólfur á að smitvarnirnar snérust um samfélagið allt, ekki bara spítalann og til væru drjúgar birgðir af nauðsynlegum lyfjum og vökva.
Liðtækur bassaleikari
Þegar nafni Þórólfs er flett upp í blöðum og tímaritum kemur í ljós að hann hefur vakið athygli fyrir fleira en læknisstörfum. Þannig mun hann vera liðtækur bassaleikari og spilaði meðal annars á þjóðhátíð Íslendinga í New York árið 1986. Þar kemur einnig að Eyjahjartað virðist slá örar í Þórólfi heldur en Eskifjarðarhjartað því hann hefur leikið á nokkrum tónleikum á vegum Eyjamanna, meðal annars með flautuleikaranum Gísla Helgasyni.
Þá komst hann í fréttirnar árið 1997 sem einn af ellefu læknum sem festust inni í lyftu á Landsspítalanum á leið upp á röntgendeild á morgunfund. „Við vorum víst of margir og sumir kannski of þungir. Þetta tók nú fljótt af og við þurftum ekki að beita læknisfræðinni hver á annan. Röntgendeildin er svo vel tækjum búin að þar greip kollegi okkar skrúfjárn og hleypti okkur út,“ sagði Þórólfur við Morgunblaðið við það tilefni.