Fjarðaportið byrjar vel
Hundruð manna lögðu leið sína í Fjarðaportið sem opnaði á sunnudaginn 1. mars og var fólk almennt ánægt með framtakið og hvernig lukkaðist. Það seldist vel í öllum 16 básunum sem buðu fjölbreytt vöruúrval. Það seldist allt upp hjá fisksölunum og kleinur og rúgbrauð kláruðust í kleinubásnum. Það var einnig mikið verslað í Nytjamarkaðnum og umboðssölunni.
Um næstu helgi verður hægt að fá ýsu, kinnar, saltfisk, hákarl og fleira hjá fisksölunum og einnig verður harðfiskur og lakkrís á boðstólum. Sjá nánar á www.ymislegt.net.