Fjöldi tilboða á Haustkvöldi á Héraði
Allnokkrir verslunar- og þjónustuaðilar á Héraði bjóða til svokallaðs Haustkvölds í kvöld en þá hafa ýmsir þjónustuaðilar opið mun lengur en venjulega og bjóða upp á ýmisleg sértilboð af tilefninu.
Hugmyndin með kvöldopnuninni er að skapa lifandi og ljúfa miðbæjarstemmningu á Egilsstöðum en það þó aðilar víðar frá sem þátt taka eins og Snyrtistofan Alda og Vök Baths í Fellabæ. Veðurspá frameftir kvöldi gerir ráð fyrir hægu og góðu veðri.
Allir staðirnir lækka verð á tilteknum vörum og þjónustu meðan opið er frameftir auk þess sem allir þeir sem kaupa fyrir hærri upphæð en fimm þúsund krónur geta komist í sérstakan lukkupott þar sem verðlaunin eru vöruúttektir að upphæð 60 þúsund krónur.
Þeir aðilar sem þátt taka eru Sentrum, River, Klassík, Vaskur, A4, Lindex, Hús handanna, Vök Baths og Snyrtistofan Alda og opið verður vel fram á kvöldið.