Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps
fagnar áætlunum um byggingu nýs vegar um Öxi og hvetur til þess að þeim verði
hraðað sem unnt er. Í bókun frá seinasta fundi kemur meðal annars fram að
Axarvegur hafi sannað gildi sitt sem mikilvæg samgönguæð á Austurlandi.
Fyrirætlanir um að byggja nýjan veg og auka umferðaröryggi séu metnaðarfullar
aðgerðir til að koma til móts við stóraukinn umferðarþunga á veginum.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.