Grunur um íkveikju
Lögregla í umdæmi sýslumannsins á Eskifirði hefur rökstuddan grun um að kveikt hafi verið í parhúsi við Stekkjargrund á Reyðarfirði aðfararnótt mánudagsins var. Slökkvilið Fjarðabyggðar var kallað út um hálffimm um morguninn, eftir að nágrannar höfðu gert viðvart um eldinn og vakið upp íbúa í húsinu þar sem eldurinn kviknaði. Sá komst ómeiddur út og slökkviliðið náði að ráða niðurlögum eldsins á nokkrum mínútum. Skemmdir urðu á húsinu af völdum sóts og reyks. Lögreglan er með málið til rannsóknar og segir alvarlegt ef um íkveikju er að ræða.