Halda bæjarhátíð til að afla fjár fyrir félagsaðstöðu
Bæjarhátíðin Útsæðið verður haldin á Eskifirði um helgina. Aðalhvatinn að baki henni er að afla fjár til að byggja upp félagsheimilið Valhöll og aðstöðu fyrir ungt tónlistarfólk þar steinsnar frá.„Það hefur alltaf verið mikill tónlistaráhugi í bænum en hann datt niður þegar æfingaaðstaða fyrir hljómsveitir hvarf. Það var bílskúr hér úti í bæ sem sveitirnar æfðu í en þær hættu þegar hann var rifinn,“ segir Kristinn Þór Jónasson, einn aðalforsprakka Útsæðisins.
Hann tilheyrir einnig hóp sem unnið hefur að því að byggja upp æfingaaðstöðu í gömlu bæjarskrifstofunum. Aðstaðan var opnuð í vetur. „Við viljum vera þar með hljóðfæri og græjur þannig að krakkarnir þurfi ekki að mikla fyrir sér að kaupa þær.“
Þeir listamenn sem koma fram á hátíðinni taka ekki laun heldur leggja til fram vinnu í þágu hljómsveitaraðstöðunnar og uppbyggingar í félagsheimilinu Valhöll. „Við höfum verið að byggja það upp sem afþreyingarmiðstöð.
Við höfum verið að safna þar fyrir aðstöðu fyrir krakka til að gera stuttmyndir og hljóðið í þær væri hægt að finna í tónlistaraðstöðunni. Hún nýtist líka fyrir sveitir til að koma fram á Útsæðinu – þannig þetta helst allt í hendur.“
Hátíðin hefst annað kvöld með bíósýningum í Valhöll en á föstudag verður gamanleikurinn Hellisbúinn sýndur þar. Aðaldagurinn er á laugardag með fjölskyldudagskrá á Eskjutúninu yfir daginn. Um kvöldið verður þar kvöldvaka með fjölda austfirskra tónlistarmanna áður en slegið verður upp balli í Valhöll. Á kvöldvökunni verður líka stærsta grill landsins þar sem grillaðir verða tíu lambaskrokkar samtímis.
Meðal þess sem í boði verður á laugardag er kökukeppni. „Nei, ég efa að ég verði með þar. Það verður þá bara Betty Crocker kaka ef ég næ að gera eitthvað!“ segir Kiddi Þór sposkur.