
Hátíðarmessa og kaffi á aldarafmæli Seyðisfjarðarkirkju
Stór stund rennur upp á sunnudaginn kemur þegar haldin verður sérstök hátíðarmessa af því tilefni að hin þekkta og fallega Seyðisfjarðarkirkja verður hundrað ára gömul.
Af því tilefni mun vígslubiskupinn á Hólum, Gísli Gunnarsson, prédika og lýsa blessun auk þess sem sr. Þorgeir Arason, sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjóna fyrir altari í kjölfarið. Eftirleiðis munu bæði kór Seyðisfjarðarkirkju og Múlakvartettinn syngja og leiða almennan söng auk þess sem Rusa Petriashvili syngur einsöng.
Litlum vafa er undirorpið að litrík Seyðisfjarðarkirkja er eitt helsta kennileiti Seyðisfjarðar og að líkindum ein mest myndaða kirkja landsins ef marka má fjölda mynda af henni á samfélagsmiðlum og í ljósmyndasöfnum á netinu.
Hún var byggð á árunum 1920 til 1922, hönnuð af Jóni G. Jónassyni málarameistara en yfirsmiður var Sigurður Björnsson. Núverandi kirkja er að hluta til byggð upp úr eldri kirkju sem stóð á Vestdalseyri fram til 1920 en hún var reist að tilstuðlan Kvenfélags Seyðisfjarðar sem sá um alla fjáröflun og umsjón með byggingunni. Kirkjan var formlega friðuð í desember 2012.
Hátíðarmessan hefst kl. 14 en að athöfn lokinni verður boðið upp á kaffiveitingar í Herðubreið.
Vildarvinir
Austurfrétt birtir fréttir að austan alla virka daga, öllum aðgengilegar og reiðir sig á auglýsingatekjur og styrki frá lesendum sínum til að halda úti þjónustunni.
Hvers virði finnst þér að hafa aðgang að fréttaþjónustu á borð við þessa?
Smelltu hér ef þú vilt styrkja Austurfrétt.