Heimildamyndakvöld í Sláturhúsinu næstu fimmtudaga
Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs í Sláturhúsinu á Egilsstöðum sýnir næstu þrjú fimmtudagskvöld myndirnar þrjár sem tilnefndar voru sem heimildamyndir ársins á nýafstaðinni Edduverðlaunahátíð.Fyrst á dagskrá er myndin Svona fólk sem sýnd verður í kvöld. Myndin fjallar um réttindabaráttu samkynhneigðra á Íslandi á árunum 1975-1985.
Örlagaríkt viðtal í tímaritinu Samúel 1975 við Hörð Torfason um kynhneigð hans hratt af stað ófyrirsjáanlegri atburðarás og markar upphaf réttindabaráttu homma og lesbía á Íslandi. Í myndinni eru raktar aðstæður og upphaf þessarar baráttu fram til 1985, sögur fólks sem daglega tókst á við ríkjandi gildismat og fordóma í von um að gera Ísland byggilegt fyrir sig og sína.
Næsta fimmtudag verður sýnd myndin UseLess. Tvær af grunnþörfum mannsins, matur og klæði, eru farnar að hafa í för með sér gífurlega slæm umhverfisáhrif. Myndin fjallar um matar- og tískusóun og er áhorfendum gerð grein fyrir því hve mikið af auðlindum fer til spillis þegar vara endar í ruslinu eftir langt framleiðsluferli og ferðalag til neytandans.
Þriðja myndin er Litla Moskva sem segir sögu sósíalismans í Neskaupstað.. Í myndinni er fjallað um stöðu íslensks sjávarþorps á tímamótum þar sem einangrun og samstaða samfélags er tekin til skoðunar með hliðsjón af sérstökum pólitískum aðstæðum.
Sýningarnar hefjast allar klukkan 19.30 og er aðgangur ókeypis.